Um Barokksmiðjuna

Strengjaorgel frá Michael Scheer í Þýskalandi

Barokksmiðjan ses. var stofnuð á vordögum 2009 og um sumarið var fyrsta barokkhátíðin haldin á Hólum í Hjaltadal. Stofnendur Barokksmiðjunnar voru Hóladómkirkja, Akureyrarkirkja, Hymnodia kammerkór og Arngrímur Jóhannsson.

Markmið smiðjunnar er annars vegar að halda tónlistarhátíð á Hólum síðustu helgina í júní ár hvert en hins vegar að efla áhuga Íslendinga á barokktónlist og barokktímanum yfirleitt. Þetta vill Barokksmiðjan gera með því að halda námskeið, tónleika og aðra viðburði. Stefnt er að því að smiðjan eignist hljóðfæri og stærsti draumurinn er svokallað strengjaorgel, sambyggt lítið pípuorgel, svokallað kistuorgel, og lítill semball. Hljóðfærin eru tengd saman þannig að hljóðfæraleikarinn getur annað hvort leikið á þau bæði í einu eða hvort í sínu lagi. Svona hljóðfæri eru kölluð claviorganum á erlendum málum.

Barokksmiðjan stefnir einnig að því að efna til samstarfs við nokkra tónlistarháskóla og bjóða upp á viðurkennd námskeið sem háskólanemar fengju metin til eininga í námi sínu. Námskeið þessi yrðu að jafnaði haldin á Akureyri.

Í stjórn Barokksmiðju Hólastiftis sitja:
Arngrímur Jóhannsson flugstjóri
Eyþór Ingi Jónsson, organisti og kórstjóri
Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari
Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum
Pétur Halldórsson, framkvæmdastjóri Barokksmiðjunnar

Varamenn:
Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld
Jóhann Bjarnason, kennari og orgelleikari á Hólum

 

Færðu inn athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*

Þú mátt nota þessi HTML efnisorð og eiginleika: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>