Skráning

Hátíðin – skráning óþörf
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á Barokkhátíð á Hólum að frátöldu söngnámskeiði Jóns Þorsteinssonar.  Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum og sömuleiðis að dansnámskeiði Ingibjargar Björnsdóttur.

Hátíðarkvöldverður – skráning nauðsynleg
Athygli skal þó vakin á að þau sem vilja taka þátt í hátíðarkvöldverði laugardagskvöldið 23. júní þurfa að skrá sig á veitingastaðnum í Hólaskóla í síðasta lagi kl. 12 sama dag. Veislustjórar um kvöldið verða Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson. Fólk sem vill troða þar upp með söng, hljóðfæraleik eða öðrum atriðum er bent á að hafa samband við þau.

Gisting – pantið tímanlega
Einnig þarf fólk að skrá sig í gistingu tímanlega því Hólar eru vinsæll ferðamannastaður. Frábært tjaldsvæði er líka á Hólum. Upplýsingar um gistingu er að finna hér.

Comments are closed.