Monthly Archives: júní 2012

Telemann setti punktinn yfir i-ið

Stórkostlegur einleikur Petris Arvos blokkflautusnillings ásamt frábærri hljómsveit Barokkhátíðar 2012 var lokapunkturinn á hátíðinni sem lauk á Hólum í gær, sunnudag. Leikinn var blokkflautukonsert í c-moll fyrir altblokkflautu og strengjasveit, eitt erfiðasta verk Telemanns fyrir blokkflautu. Petri sýndi mikil tilþrif, … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Mikil tónlistarveisla á Hólum í dag

Dagskráin á Barokkhátíð á Hólum í dag, laugardaginn 23. júní, var sannkölluð tónlistarveisla. Í hádeginu léku nemendur á fiðlunámskeiði Hildigunnar Halldórsdóttur í Hóladómkirkju, meðal annars íslenska þjóðlagið María meyjan skæra sem heyra má og sjá hér: María meyjan skæra Petri Arvo, … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Jaap Schröder á Hólum

Einn af frumkvöðlum barokkhreyfingarinnar í Evrópu á síðari hluta tuttugustu aldar, hollenski fiðluleikarinn Jaap Schröder, tekur þátt í Barokkhátíð á Hólum og hélt tónleika í Hóladómkirkju í gær, föstudag, ásamt Hildigunni Halldórsdóttur fiðluleikara og Sigurði Halldórssyni sellóleikara. Einnig kom hljómsveit … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Barokkhátíðin hafin

Sól og blíða var á Hólum í hádeginu í dag, 21. júní,  þegar Barokkhátíðin byrjaði með tónleikum Vilhjálms Inga Sigurðarsonar og Eyþórs Inga Jónssonar í Hóladómkirkju. Tónleikarnir tókust frábærlega og síðar í dag hélt Vilhjálmur erindi um sögu trompetsins frá … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar

Að minnsta kosti tíu söngnemendur verða á söngnámskeiði Jóns Þorsteinssonar á Barokkhátíð á Hólum 2012. Söngurinn verður áberandi í dagskrá hátíðarinnar og söngnemum gefst kostur á að koma fram á söngvökunni á föstudagskvöld, hátíðarkvöldverðinum á laugardagskvöld, í messunni á sunnudagsmorgun … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Danssýning

Barokkkvöldverður verður Laugardagskvöldið 23. júní í sal Hólaskóla. Óskað er eftir að þátttakendur á Barokkhátíð 2012  troði upp með ýmis atriði, gamanmál, tónlist, leiklist, ræður eða annað skemmtilegt. Meðal annars sýna tveir ungir dansarar barokkdansa uppáklæddir í 17. aldar tískufatnaði. … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Barokkhlaðborð

Brugðið verður upp sannkölluðu barokkhlaðborði á hádegistónleikum Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur fiðluleikara, Eyþórs Inga Jónssonar orgelleikara og Sigurðar Halldórssonar sellóleikara. Tónleikarnir verða föstudaginn 22. júní og hefjast klukkan 12.30. Tríóið leikur valin verk eftir þekktustu barokktónskáldin en líka verk eftir minna … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Finnski kvartettinn Q Consort

Blokkflautukvartettinn Q Consort frá Finnlandi leikur á tónleikum í Hóladómkirkju á Barokkhátíð á Hólum 2012. Kvartettinn er skipaður fjórum ungum Finnum sem stunduðu ýmist nám við Síbelíusarakademíuna í Helsinki, tónlistarháskólann í Amsterdam eða tónlistarháskólann í Haag. Á tónleikunum leika þau … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Jaap Schröder heimsækir Barokkhátíð á Hólum

Á tónleikum fiðluleikaranna Jaaps Schröders og Hildigunnar Halldórsdóttur og Sigurðar Halldórssonar sellóleikara í Hóladómkirkju 22. júní verða leikin verk sem varpa skýru ljósi á eiginleika fiðlunnar sem einleiks- og samspilshljóðfæris. Fyrsta tónskáldið, Stradella, var uppi á Ítalíu þegar fiðlan var … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir

Námskeið Hildigunnar Halldórsdóttur

Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari heldur námskeið á Akureyri dagana fyrir Barokkhátíð á Hólum 2012. Námskeiðið er í boði Barokksmiðjunnar og er öllum opið sem vilja tileinka sér tækni og túlkun við flutning barokktónlistar. Það hefst 18. júní og stendur til 20. … Continue reading

Posted in Uncategorized | Lokað fyrir athugasemdir