Nú líður að Barokkhátíð á Hólum 2012. Meðal viðburða á hátíðinni er að finnski blokkflautukvartettinn Q Consort kemur fram á tónleikum og höfuðpaur kvartettsins, Petri Arvo, heldur fyrirlestur um flautur barokktímans. Félagar í kvartettinum eru allir fyrrverandi nemendur Sibeliusarakademíunnar í Helsinki. Petri er framsækinn flautuleikari eins og sést í meðfylgjandi myndbandi þar sem hann flytur japanska nútímatónlist. Petri Arvo drawing
Q Consort kvartettinn leikur á Barokkhátíð 2012
Vel heppnaðri Barokkhátíð á Hólum lokið
Þriðju Barokkhátíðinni á Hólum í Hjaltadal lauk sunnudaginn 26. júní. Þátttakendur og gestir hátíðarinnar voru hæstánægðir með þessa fjóra daga á Hólum. Aðsókn var mjög góð að öllum viðburðum hátíðarinnar. Um sextíu manns tóku virkan þátt í hátíðinni og annað eins að minnsta kosti kom til að njóta tónleika, fyrirlestra og annarra viðburða hátíðarinnar. Hugmyndir eru þegar komnar fram að dagskrá næstu hátíðar sem haldin verður dagana 21.-24. júní 2012. Þar fjallar listfræðingur um einkenni barokktímans í listum, meiningin er að halda aftur námskeið fyrir strengjaleikara, fyrirlestur um málmblásturshljóðfæri barokktímans og viðræður eru í gangi við fræðimenn um að fjalla um tónlist á Íslandi á barokktímanum. Fréttir af þróun dagskrárinnar verða settar hér inn á vefinn eftir því sem vinnunni vindur fram. Nokkrar myndir frá Barokkhátíð 2011 má sjá á myndasíðunni eða með því að smella hér.
Ókeypis á alla viðburði Barokkhátíðar á Hólum
Enginn aðgangseyrir er tekinn á viðburðum Barokkhátíðar á Hólum. Í boði eru þrennir hádegistónleikar, einir miðnæturtónleikar, þrennir fyrirlestrar, kvöldvaka með fróðleik um myndlist barokktímans, barokkbúninga og barokkdans, barokkmessa og veglegir lokatónleikar svo eitthvað sé nefnt. Verið velkomin heim að Hólum í Hjaltadal á Barokkhátíð 2011!
Athyglisverðir fyrirlestrar á Barokkhátíð á Hólum
Spennandi fyrirlestrar verða haldnir á Barokkhátíðinni á Hólum. Á fimmtudag talar Eyþór Ingi Jónsson organisti um talnaspeki barokktímans, hvernig tónskáldin notuðu ýmis talnatákn í tónverkum sínum, íþrótt sem Johann Sebastian Bach náði sennilega manna bestum tökum á. Á föstudag talar Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari um sögu og
þróun slagverkshljóðfæra, hvernig þau voru notuð á barokktímanum en líka bæði fyrr og síðar. Á laugardag ræðir Michael Jón Clarke um sögu nútíma söngtækni sem má rekja til geldinganna. Þeir höfðu mikið vald á röddinni og þróuðu aðferðir sem enn eru notaðar til að þjálfa söngvara, ekki síst upp í tónhæð. Fyrirlestrarnir fara fram í Auðunarstofu. Á föstudagskvöld verður haldin kvöldvaka í sal Hólaskóla þar sem Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur heldur erindi um íslenska myndlist á barokktímanum. Stefanía Adolfsdóttir, yfirbúningameistari Borgarleikhússins, talar líka um búninga barokktímans, Ingibjörg Björnsdóttir listdansari ræðir um barokkdans og hljóðfæraleikarar flétta inn í efnisskrána tónlist.
Námskeið Sigurðar Halldórssonar hafið
Í dag hófst í Hofi á Akureyri námskeið Sigurðar Halldórssonar sellóleikara sem er eins konar upphitun fyrir Barokkhátíð á Hólum 2011. Sjö strengjahljóðfæraleikarar taka þátt í námskeiðinu auk tveggja hljómborðsleikara sem leika á sembal. Hópurinn verður grunnurinn í hljómsveit Barokkhátíðarinnar en á Hólum bætist við a.m.k. einn fiðluleikari, trompetleikarar, óbó, krumhorn, slagverk og jafnvel fleiri hljóðfæri. Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingu í Hofi í dag.
Krumhorn, bjúghorn eða sveighorn
Spennandi verður að kynnast því sérstæða blásturshljóðfæri krumhorni á hádegistónleikum sem Judith Þorbergsson sér um föstudaginn 24. júní á Barokkhátíð á Hólum. Tónleikarnir verða haldnir í Auðunarstofu. Krumhorn er gert úr bjúglaga röri með götum en tónninn myndast með blaði sem minnir á óbómunnstykki. Heitið krumhorn er úr þýsku og þýðir bogið horn og því gætum við kallað hljóðfærið bjúghorn eða sveighorn á íslensku. Krumhorn var mikið notað á endurreisnartímanum en lifði áfram og raunar allt fram á okkar daga, til dæmis í pólskri þjóðlagatónlist. Á hádegistónleikunum í Auðunarstofu verður leikið á nokkrar stærðir eða raddir þessarar sérstæðu hljóðfærafjölskyldu.
Purcell í peysufötum
Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari sjá um hádegistónleika laugardaginn 25. júní á Barokkhátíð á Hólum. Þau leika barokktónlist á alþýðuvegu. Vinnuheitið er „Fiðlan og fótstigið“ en líka mætti kalla það „Purcell í peysufötum“, „Lully í lopapeysu“ eða „Händel með hangikjöti“. Þetta verður sannarlega óvenjulegt barokk og spennandi að heyra.
Fiðluleikarar óskast
Tvo til þrjá fiðluleikara vantar á námskeið Sigurðar Halldórssonar sellóleikara sem haldið verður á Akureyri dagana fyrir Barokkhátíð á Hólum. Á námskeiðinu fer Sigurður yfir ýmis atriði í flutningi barokktónlistar og æfð verða verk sem síðan verða flutt á hátíðinni á Hólum. Námskeiðið er ókeypis. Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á netfang Barokksmiðjunnar, barokksmidjan@holar.is eða hafa samband beint við Sigurð í netfangið siha@ismennt.is.
Barokkmyndlist, -dans og -tíska
Kvöldvaka er á dagskrá Barokkhátíðar á Hólum föstudagskvöldið 24. júní undir stjórn Þóru Kristjánsdóttur listfræðings. Þóra ræðir um íslenska myndlist á fyrri öldum með áherslu á barokktímann 1600-1750. Ingibjörg Björnsdóttir fræðir um dansinn. Stefanía Adolfsdóttir, forstöðumaður búningadeildar Borgarleikhússins, verður með innlegg um fatnað barokktímans og tónlistarfólk læðir inn tónlistaratriðum.
Hádegistónleikar Daníels Þorsteinssonar
á Barokkhátíð á Hólum
Daníel Þorsteinsson opnar Barokkhátíð 2011 á Hólum með hádegistónleikum í Hóladómkirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 12.30. Hann flytur verk eftir hollenska tónskáldið Jan Pieterzoon Sweelinck sem var organisti við Oude Kerk í Amsterdam. Segja ma að hann hafi á sinn hátt rutt leiðina fyrir norður-þýska orgelskólann. Sweelinck var samtímamaður Giovannis Gabrielis og Monteverdis og þessi þrjú tónskáld áttu drjúgan þátt í því að brúa bilið á milli endurreisnar og barokks í upphafi 17. aldarinnar.








